Skautaskóli
12. September 2008
Að skauta áfram:
- beygið ykkur í hnjánum, verið útskeif, ýtið niður og út með innri egg skautans og réttið úr fætinum
- skautum er haldið lágt og verið bein í baki
- beygið hné vel og hafið þungann á miðjum rennslisskautanum

Að skauta afturábak:
- beygið hné, tærnar saman og ýtið hælnum út með ynnri egg skautans
- færið þungann á rennslisfótinn
-
- hafið hné þess fótar sem rennur, beygt
- færið fótinn sem þrýst var út, að hinum
Stoppið með plógi, áfram
Stoppið með plógi afturábak
"Hokkí stopp" með snúningi 90 gráður og "sköfu"

Snúningar:
- skautum haldið vel í sundur, hné beygð
- færið þungann á ytri egg á innri skauta
Áfram-afturábak snúningur:
- hné beygð
- lyftið hægri skauta, snúið mjöðmum og öxlum til hægri
- setjið þungann á vinstri fót
- snúið hægri skauta 180 gráður svo hælar snúi saman
- haldið áfram að snúa mjöðmum og öxlum 180 gráður þar til að þið snúið afturábak, setjið hægri fót niður
- lyftið vinstra fæti og snúið afturábak
- þegar skautum er snúið, lyftið þeim, ekki skrapa ísinn

Krossun:
Áfram:
- þungi á ynnri skauta, lyftið ytri skauta og krossið, fót yfir fót
- ýtið með ytri brún innri skauta til að fá aukinn kraft


Meiri æfingar fyrir byrjendur:
