Flokkur 2 og 3
30. Janúar 2008
Veturinn 2010-2011
| Flokkur 2/3 | Ís | Af ís |
| Miðvikudagur | 15:40-16:20 | 16:35-17:20 |
| Sunnudagur | 11:25-12:05 | 12:20-13:00 |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Búningaklefar- hópur 2: klefar 4 og 5 / Hópur 3: klefi 1
Mæting á ís: Allir nemendur eiga að vera tilbúnir, sitja á bekkjum við ísinn (undir stóru gluggunum) og fyrir framan sitt svæði 5 mínútum áður en tíminn hefst á ís.
Af ís: Gott er að hafa smá nesti: ávexti og eitthvað gott að drekka áður en af ís æfingar hefjast. Iðkendur borða nesti og að því loknu fara þeir í Íssal (3.hæð) og taka þátt í æfingum á gólfi.
Skautum regnbogann: er sú námsskrá sem þjálfarar kenna eftir. Mat á frammistöðu fer fram fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Aðeins þeir iðkendur sem þjálfarar telja tilbúna, fara í slíkt mat. Frekari upplýsingar má finna hér á heimasíðu okkar www.bjorninn.com.
Útbúnaður: Mikilvægt er að iðkendur klæðist hlýjum en teygjanlegum fatnaði sem hindrar ekki hreyfingar. Mikilvæg er að allir iðkendur klæðist fingravettlingum og er hjálmur æskilegur fyrir yngstu iðkendurna ásamt öllum þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á ísnum. Félagsbúningur Listskautadeildar er svört flíspeysa og buxur með rennilás á hliðum - félagsbúningurinn er til sölu hjá deildinni á sunnudögum.
Skautar: Við hvetjum alla iðkendur til þess að koma með sína eigin skauta, leðurskauta ef kostur er. Þjálfarar geta gefið leiðbeiningar við val á skautum. Nauðsynlegt er að skerpa blöðin fyrir fyrstu notkun – það skal aðeins gert af fagaðilum. Nauðsynlegt er að eiga skautahlífar til þess að hlífa skautablaðinu og þurfa iðkendur einnig að hafa klút til þess að þurrka blaðið eftir ístíma.
Auknar kröfur: Í þessum flokki verður smátt og smátt farið í það að undirbúa iðkendur fyrir keppni og kynna íþróttina fyrir iðkendum með áframhaldandi þátttöku innan íþróttarinnar að leiðarljósi. Iðkendur þessa flokks stendur því til boða að taka þátt í Bangsamóti og Unglingamóti Bjarnarins, sem haldið er í lok tímabilsins.
Ef einhverjar spurningar vakna er ykkur velkomið að senda tölvupóst eða hringja til þess þjálfara sem fer með umsjón flokksins: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. s.698-0899
Með von um gott samstarf í vetur
Helga, Berglind, Sigga, Sigrún, Solla og Undina
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

