Almennt um mót

Skipting í keppnisflokka

Öllum keppendum er skipt í keppnisflokka eftir getu og aldri. Þegar talað er um aldur er alltaf miðað við aldur í upphafi keppnistímabils. Keppnistímabilið er frá 1.júlí - 30.júní. Ef keppandi verður 13 ára 2.júlí er hann því í keppnisflokki 12 ára og yngri út keppnistímabilið.

Í öllum A- og B- keppnisflokkum þurfa keppendur að hafa lokið Grunnprófi ÍSS til þess að eiga þátttökurétt á mótum Skautasambands Íslands. Frekari upplýsingar um Grunnprófin má finna á stiku hér til vinstri.

 

Keppnirseglur

Allar keppnisreglur eru gefnar út af Skautasambandi Íslands (ÍSS) og geta breyst frá ári til árs. Allar keppnisreglur eru unnar í samráði við þjálfararáð Skautasambands Íslands. Smellið á linkinn hér fyrir neðan til þess að fá frekari upplýsingar um lágmarkskröfur fyrir tímabilið 2009-2010

 

Prógröm

Skautaæfingar eru settar saman með tengisporum og öðrum listrænum æfingum í samræmi við tónlist hvers keppanda. Skautaæfingarnar ráðast af getu keppandans en lágmarkskröfur Skautasambandsins aukast með aldri og getu (A, B eða C).

Keppendur á fyrsta ári í flokkum 8 ára og yngri og 10 ára og yngri C skauta sameiginlegt skylduprógram Skautasambands Íslands þar sem þeim er skylt að gera sömu æfingar við sömu tónlist. Þessir keppendur fara eins og aðrir, einir inn á ísinn og framkvæma sínar æfingar. Keppendur á öðru ári í þessum keppnisflokkum fá sitt eigið prógramm með eigin tónlist en er einnig skylt að gera sömu æfingar en uppröðun æfinga í prógrammi er frjáls.

 

Dómgæsla A- og B- keppnisflokkar

Í nýja dómarakerfinu fer öll dómgæsla fram í gegnum tölvukerfi. Dómararpanellinn er tvíþættur þar sem sérfræðingar (TS) hafa það hlutverk að tilgreina þær æfingar sem framkvæmdar eru meðan dómarar gefa æfingunum einkunn. Hér má finna frekari útskýringar á nýja dómarakerfinu - NJD

 

Dómgæsla C- keppnisflokkar

Öll prógröm í C-flokkum eru dæmd sem frjáls prógröm. Keppendur í flokkum Senior C, Junior C, Novice C ásamt 12 ára og yngri C eru dæmd eftir sama dómarakerfi og A- og B-flokkar. Keppendur 10 ára og yngri C og 8 ára og yngri C eru dæmdir eftir stjörnukerfi.

 

Einkunnir

Einkunnir eru hvorki sýndar né kallaðar upp í yngri flokkum þ.e. 10 ára og yngri. Nýja dómarakerfið gefur þó hverjum keppanda niðurstöðu sem hann getur svo haft að markmiði að bæta frá einu móti til annars.


Verðlaunaafhending

Nauðsynlegt er að fylgjast vel með stundatöflu og framvindu mótsins því tímamörk geta færst úr stað. Allir keppendur eiga að vera tilbúnir í keppnisfatnaði og skautum þegar verðlaunaafhending hefst. Í yngri flokkum fá allir keppendur verðlaunapening og viðurkenningu. Keppendum í yngri flokkum er skipt upp í fjögur sæti þ.e. 1. 2. 3. og allir aðrir í 4. sæti.

 

Mæting á mótsdag

Keppendur þurfa að vera mættir 60 mín áður en keppni í keppnisflokknum hefst (mætingartími er tekinn fram fyrir hvert mót). Þetta er gert til þessað tryggja að allir keppendur séu tilbúnir þegar að keppni hefst s.s.upphitun, réttur klæðnaður, réttur útbúnaður o.s.frv. Ef keppni er áundan áætlun er haldið áfram með mótið og þá er ætlast til þess að allir keppendur séu mættir og tilbúnir til keppni.

 

 

Hlutverk

Hlutverk keppenda

Að fara að fyrirmælum þjálfara. Vera mættur tímanlega í réttum útbúnaði (mæting er skráð í móttöku). Keppandi kemur til þjálfara þegar hann er kominn á keppnisstað. Keppandi á einnig að fylgjast með stundatöflu og vera á keppnissvæði á meðan keppni í hans keppnisflokki stendur yfir. Um fram allt eiga allir keppendur að vera sjálfum sér, foreldrum sínum og félagi til sóma hvað varðar hegðun og framkomu.

 

Hlutverk þjálfara

Að fara yfir útbúnað og tónlist. Þjálfari leiðbeinir keppendum með upphitun og styður þá á meðan á keppni stendur. Þjálfari er einnig samskiptaaðili á milli keppenda og dómara.


Hlutverk foreldra

Að styðja barnið sitt í því sem það er að gera. Að hafa barnið tilbúið þ.e. í tilskyldum klæðnaði, réttum útbúnaði, með uppsett hár og andlitsfarða við hæfi. Á meðan á undirbúningi keppni stendur s.s.upphitun af ís og á ís er ekki ætlast til þess að foreldrar verði með keppendur. Einnig er mælst til þess að foreldrar fylgist með keppni úr stúku skautahallarinna þar sem keppnissvæðið er einungis ætlað fyrir keppendur og þjálfara landsins. Foreldrar mega aldrei og undir neinum kringumstæðum ræða við eða hafa samskipti við dómara mótsins.

 


Undirbúningur og útbúnaður fyrir mót

Útbúnaður

Stúlkur: keppniskjólll, skautasokkabuxur sem koma yfir skautana / samfestingur

Drengir: snyrtilegur herraklæðnaður þ.e. buxur og skyrta

Upphitun á ís: æskilegt er að vera í flíspeysu með vettlinga (munið eftir Bjarnarpeysunni og buxunum)


Skautar

Skautar þurfa að vera hreinir, með hreinum reimum. Reimar þurfa að vera fastar ofan í skautunum þ.e. ekki lausar slaufur. Allir keppendur eiga að nota plasthlífar undir skautablöðin þegar gengið er á milli staða á keppnissvæði.


Andlitsfarði

Þjálfarar mæla ekki með því að notaður sé andlitsfarði á ung börn. Það eru börn og unglingar sem stíga inn á ísinn og viljum við að þau líti út sem slík. Þó er leyfilegt að setja aðeins lit í kinnar og að nota andlisfarða til að undirstrika heilbrigt útlit.

 

Hár

Hár skal vera snyrtilegt og tekið frá andliti. Spennur og annað sem notað er til að festa hárið skal vera tryggilega fest. Allt laust getur skapað slysahættu.

 

 

Annað

Blóm og gjafir

Leyfilegt er að kasta blómum og litlum gjöfum inn á ísinn til keppenda að lokinni keppni. Ef foreldrar eru á ekki á keppni er gott að fá einhvern sem verður viðstaddur til þess að sjá um þessi mál - mikilvægt að það verði enginn út undan hvað þetta varðar.

Blómum og öðru skal vera vel pakkað inn svo að ekkert geti losnað og valdið slysahættu fyrir næstu keppendur. Keppendur sækja sínar gjafir sjálfir, nema að annað sé tekið fram.


Myndataka

Ekki er leyfilegt að taka myndir með flassi á meðan á keppni stendur. Flass getur blindað keppendur og valdið slysahættu.

 

 

Stuðningur og lærdómsrík upplifun

Allir keppendur eru hvattir til að vera viðstaddir aðra keppnisflokka allt mótið. Með því, kynnast þeir íþróttinni í heild, fá tækifæri á að horfa á skemmtileg prógröm, læra að meta tæknilegan og listrænan þátt í mismunandi prógrömum og jafnvel að eignast sínar eigin fyrirmyndir. Mikilvægt er að allir keppendur hvetji sitt fólk áfram á jákvæðan og skemmtilegan hátt.