Útbúnaður

Fatnaður

  • Hlýr og teygjanlegur fatnaður sem heftir ekki hreyfigetu
  • Vettlingar eru nauðsynlegir
  • Sleppa skal löngum treflum, hangandi reimum, skartgripum eða hörðu hárskrauti ef  kostur er

 

Skautar

  • Eiga að vera í réttri stærð og veita ökklum stuðning þ.e. skautar eru mátulegir ef skautari er í einu pari af sokkum. Leðurskautar eru æskilegir.
  • Eiga að vera vel reimaðir - ekki að ná fingri á milli
  • Nemendur og/eða forráðamönnum er velkomið að leita aðstoðar hjá þjálfurum við val á skautum.

 

Skerping

  • Er nauðsynleg fyrir nýja skauta
  • Skal framkvæmd af fagmönnum, leitið upplýsinga hjá skautafélögum
  • Er háð aðstæðum t.d. hvernig farið er með skautana og hversu oft er æft
  • Ef byrjandi: skautar tvisvar á viku = tveggja til þriggja mánaða fresti
  • Nemendur geta látið skerpa skauta í Egilshöllinni og í Skautahöllinni í Laugardal

 

Hvernig annast skal um skauta og skautablöð

  • Lofta skal um skauta milli æfinga
  • Þurrkið skauta og blöð vel eftir hverja notkun með t.d. handklæði
  • Nota skal plasthlífar til að ganga á fyrir utan ísinn. Geymið skauta ekki í þessum  plasthlífum á milli æfinga þar sem blöðin geta ryðgað