Fatnaður, umhirða skauta o.fl.
Búnaður
Fatnaður - Á ís
-
Hlýr og teygjanlegur fatnaður (flísbuxur og flíspeysa)
-
Vettlingar eru nauðsynlegir
-
Sleppa skal löngum treflum, löngum reimum
Fatnaður - Á afís
-
Íþróttaföt og strigaskór
-
Kuldaskór og stígvél eru ekki góð fyrir afís, gott að geyma strigaskó í skautatösku
-
Gott að vera með vatnsbrúsa og smá nesti til að hafa á milli æfinga
Skautar
-
Eiga að vera í réttri stærð og veita ökklum stuðning þ.e. skautar eru mátulegir ef skautari er í einu pari af sokkum. Leður skautar eru æskilegir.
-
Eiga að vera vel reimaðir – ekki að ná fingri á milli
-
Endilega leitið til þjálfara við val á nýjum skautum
Skerping
-
Er nauðsynleg fyrir nýja skauta
-
Skal framkvæmd af fagmönnum, t.d. hjá starfsmönnum skautasvellsins
-
Er háð aðstæðum t.d. umhirða skautanna og hversu oft er æft
-
Ef byrjandi: skautar tvisvar á viku = skerping á tveggja til þriggja mánaða fresti
Hvernig annast skal um skauta og skautablöð
-
Lofta skal um skauta milli æfinga / geyma í mjúkum hlífum
-
Þurrkið skauta og blöð eftir hverja notkun með t.d. litlu handklæði
-
Nota skal plasthlífar til að ganga á fyrir utan ísinn. Geymið skauta ekki í þessum plasthlífum á milli æfinga þar sem blöðin geta ryðgað.